Kóreskur matur ;)

Það er nú bara notalegt hérna þessa dagana nema okkur náttúrulega vantar hann Ragga okkar , en svona fyrir utan það þá er þetta bara notalegt.  Í gær gerði ég hringi og armbönd úr fiskiroði og var bara nokkuð sátt við útkomuna ;) set inn myndir af því.  Ingó og Robbi eru búnir að vera þvílíkt duglegir og gaman fyrir þá að fá að vera svona saman, ég held að það sé svolítið mikils virði, en það verður enn skemmtilegra þegar Júlli og Linda verða líka komin næsta vor en þau stefna á að flytja hingað i mai 2009 :):):)

Í gær fengum við gestakokk hingað á heimilið :) en vinur hanns Robba sem kemur frá Kóreu  kom og eldaði handa okkur koreskan mat :) :) ekkert smá sætt hjá honum og gaman :) í dag er svo bara búið að vera að þrífa :) og vá það er svo næs þegar maður er búin að þessu :):) svo í kvöld verður það bara sófinn prjónarnir og kertaljós :) sem sagt á mínum mælikvarða kósý kvöld , en ég veit ekki hvort ég var búin að segja frá því hér að mig langar að þakka öllum þeim sem gerðu sér ferð í þverholtið á ljósanótt fyrir komuna það er svo gaman að fá svona fólkið saman :) og  núna er þverholtið komið í leigu ::):) og óska ég bara Guðrúnu og Dedda góðrar veru í húsinu :)

Raggi er búinn að vera að standa í þessum flutningum ásamt Júlla bróðir og Áslaugu :) og ég var nátturulega í símanum að tjakka hvort þetta og hitt væri ekki búið :) en Raggi tilkynnti mér það að það væri alveg óþarfi að ég fjarstýrði þessu öllu frá Austurríki :):) skil það ekki eins og ég fjarstýri vel :):) en svona er það maður finnst maður alltaf vera ómissandi

Kveðja Helga Björg


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband
OSZAR »